Apríltilboð og Páskatilboð í gistingu, mat og dekur

Húsafell er hlýlegur griðastaður sem er umvafinn fallegri náttúru

Apríltilboð og Páskatilboð 2025

Gildir fyrir gistingar á tímabilinu: 1. apríl til 30. apríl 2025.

Herbergi með morgunverði fyrir tvo, ásamt 3ja rétta máltíð, aðgang að Lindinni og Giljaböðunum fyrir tvo.

Verð: 25.395 á mann.

Venjulegt verð 101.580kr. Tilboðsverð 50.790kr.

Hægt er að bóka það tilboð hér.

Eða

Herbergi með morgunverði fyrir tvo, ásamt 3ja rétta máltíð og aðgang að Lindinni.

Verð: 19.945 á mann.

Venjulegt verð 79.780kr, Tilboðsverð 39.890kr.

Hægt er að bóka það tilboð hér.

Verið velkomin á Húsafell.

Fyrir frekari upplýsingar: info@hotelhusafell.is

Hótel Húsafell

Hótel Húsafell býður upp á 48 vel útbúin herbergi í fjórum stærðum. Öll herbergin eru reyklaus og skreytt með málverkum eftir Pál Guðmundsson, listamann á Húsafelli.

Á Húsafelli er að finna fjölbreytta afþreyingu við flestra hæfi. Hvort sem það eru gönguferðir í fallegri náttúru eða skipulagðar ferðir.

Skipulagðar ferðir í nágrenni Húsafells

Giljaböðin á Húsafelli voru nýlega valin einn af 14 mest spennandi stöðum í heiminum að mati Culture trip. Skipulagðar ferðir eru í Giljaböðin með fjórum brottförum á dag sem farnar eru frá Húsafelli. Smellið hér til að fá frekari upplýsingar.

Viðgelmir er stærsti hraunhellir Íslands og er í næsta nágrenni við Húsafell. Það eru skipulagðar ferðir nokkrum sinnum í Víðgelmi. Smellið hér til að fá frekari upplýsingar.

Into the Glacier er með skipulagðar ferðir upp á Langjökul í manngerðan og stórbrotinn íshelli. Skipulagðar ferðir eru nokkrum sinnum á dag frá Húsafelli. Smellið hér til að fá frekari upplýsingar.

Giljaböðin

bóka tilboð