Tilbaka á upphafssíðu
Forsíða
Gisting
Dægradvöl
Nágrenni
Sumarhús
Saga






Ferðaþjónustan Húsafelli - Húsafell - 311 Borgarnes - Sími: (+354) 435 1550/562 1553 - Fax: (+354) 435 1551
E-mail: husafell@husafell.is

Surtshellir

Surtshellir er í Hallmundarhrauni um 14 km. frá Húsafelli í landi Kalmanstungu. Er hann talinn einn þekktasti og lengsti hellir landsins. Í fornsögum getur um Surtshelli. Landnáma telur hann kenndan við jötuninn Surt og getur þess að skáld hafi ort kvæði um Surt og flutt honum það í hellismunnanum. Í Landnámu og Harðar-sögu er talað um flokk illvirkja, sem sátu heima í hellinum og rændu fé af heiðunum og úr byggðinni. Það var ómögulegt að ráðast á þá í hellinum, því að vígi er að svo gott, en loks heppnaðist að koma þeim að óvörum þar sem þeir sváfu í lág einni (vopnlág) þegar þeir komu af smalamennsku ofan af heiði. Upp úr þessum sögum hefur Hellismanna-saga orðið til, sú sem er fest á bók í þjóðsögum Jóns Árnarsonar. Víða um nágrennið eru örnefni sem vísa til Hellismannasögu.

Vefstjóri