Skemmtun fyrir alla fjölskylduna

Leyfðu okkur að skipuleggja fullkomið fjölskyldufrí.

Fáðu sem mest út úr fríinu

Fjölbreytt úrval ævintýra og afþreyingar á staðnum býður upp á einstakt tækifæri til að upplifa töfra íslenskrar náttúru með fjölskyldunni.

Sjá alla afþreyingu

Gisting

Leggðu tjaldvagninum og sestu við eldinn, leigðu sumarbústað eða bókaðu herbergi á hótelinu okkar.

Hótel Húsafell

Sameinaðu munað lúxushótels og ævintýramennsku í stórkostlegri náttúru Íslands. Hótel Húsafell býður upp á 48 vel útbúin herbergi í fjórum stærðum: Standard, Deluxe, Superior Deluxe og Suite.

skoða herbergi

Sumar­húsin

Njóttu friðsældar Húsafells í sumarhúsi þar sem allt er til alls; fullbúið eldhús, stofa með sjónvarpi, þráðlaust net og stór pallur með heitum potti.

Sjáðu sumarhúsin

Tjald­svæði

Tjaldsvæðið í Húsafellsskógi hefur notið mikilla vinsælda í áraraðir . Stæðin eru á miðju orlofssvæðinu og göngufæri í sund, golf, leiktæki, verslun og veitingar.

Komdu og sestu við varðeldinn á fallegu sumarkvöldi.

Sjá frekari upplýsingar

Norðurljós

Húsafellssvæðið býður upp á kjöraðstæður til norðurljósaskoðunar en að meðaltali sjást norðurljósin þrisvar í viku yfir vetrarmánuðina. Nálægðin við Langjökul, næststærsta jökul landsins, gerir veðurskilyrði einstaklega ákjósanleg, þar sem loftið er kalt og oft heiðskírt.

Lesa meira

Úrvals matur og vín

Á Hótel Húsafelli leggjum við áherslu á árstíðabundna matseðla þar sem íslenskt hráefni fær að njóta sín í alþjóðlegri matargerð. Góður matur, drykkur, þjónusta og fallegt umhverfi skapa ógleymanlega kvöldstund.

Opið alla daga fyrir hádegisverð frá 12:00 til 14:00 og kvöldverð frá 18:00 til 22:00.

BÓKA BORÐ

Verðlaun og ummæli

Búðu þig undir hið óvænta

Húsafell er innsta byggða ból í Borgarfjarðarsýslu og sannkölluð náttúruperla milli hrauns og jökla. Þar sameinast allt það besta og magnaðasta úr íslensku landslagi.

SJÁ ALLT MYNDASAFN

Umsagnir

We had an amazing time at Husafell. Beautiful location with so much to do – hikes, relaxing in geothermal baths, short trips to the caves and glacier ... we couldn't do it all in 2 days.

February 23, 2019

High quality does not begin to cover this place. We had the most fabulous trip to Hotel Húsafell whilst we were in Iceland. The hotel itself is beautifully designed and the owner should be incredibly proud of its staff as the service we received was absolutely impeccable.

January 12, 2019
opna í google maps