

Ferðaþjónustan
Húsafelli - Húsafell - 311
Borgarnes -
Sími: (+354) 435 1550/562 1553 - Fax: (+354) 435 1551
E-mail:
husafell@husafell.is
Gönguferðir
Húsafell
má kalla draumaland göngumannsins. Allt um kring eru heillandi
gönguleiðir þar sem alltaf ber eitthvað nýtt fyrir
augu. Þéttir skógar, hraunmyndanir, kristaltærar
uppsprettur, stórbrotin gil, hvítfyssandi jökulár,
fjölbreytt dýra- og fuglalíf auk merkra fornminja og
annarra mannvistarleifa sem segja ótal sögur um liðna tíð
og sambýli manns og náttúru. Einnig gengur ferðalangurinn
víða fram á sérkennilegar höggmyndir Páls
Guðmundssonar myndhöggvara sem skerpa oft svip landsins á
nærgætinn hátt við náttúruna.
Hægt er að finna auðveldar gönguleiðir fyrir alla
fjölskylduna um skóginn og víðar, einnig eru áhugaverðar
leiðir fyrir þá brattgengu. Þar má nefna há
fjöll eins og Eiríksjökul og Ok. Hestamenn og hjólreiðamenn
finna líka spennandi leiðir fyrir sig.
Hægt er að fá gönguleiðakort um Húsafell
og næsta nágrenni.